Til hamingu Ísland, til hamingju strákar og til hamingju Diddi okkar.

Diddi sagði sjálfur að Gummi eigi eftir að uppgötva hann í sókninni. Við sem þekkjum til vitum að Diddi hefur mikla náðargáfu þegar kemur að sóknarleik í handbolta. Hann getur nelgt, fittað og gefið boltann eins og engin sá morgundagurinn.

Vörnin hefur aldrei verið vandamál hjá Didda, maðurinn er einn stór vöðvi og því fáir sem fara í gegnum hann. Það höfum við séð í öllu mótinu og Diddi var manna bestur í vörninni í morgun.

Ég er stoltur af Didda og strákunum öllum. Til hamingju Breiðholt !

Comments Ein athugasemd »

Íslendingar eru komnir í úrslit á Ól 2008. Þetta er bara rugl. Svo ég vitni í hann Didda „Það er erfitt að tala núna og ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja“. Liðið spilaði eins og ég veit ekki hvað og vörnin var klikkuð með okkar mann í fararbroddi, sem hamraði einnig 2 mörk. Nú held ég að það sé ekki spurning með að Diddacrew þurfi að koma saman fyrir leikinn.

Comments 2 Athugasemdir »

Fengum senda þessa klippu eftir leikinn við Pólland þar sem forseti Íslands gengur inná völlinn og tekur í spaðann á mönnum. Okkar maður er að sjálfsögðu viðstaddur.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Comments Engar athugasemdir »

Breiðholtið allt heimtar að sjá Herra Ólaf Ragnar Grímsson í DiddaCrew bol að gefa Diddanum okkar hnefaknús.

Sömuleiðis sendir hópurinn allur saknaðarkveðjur til Mexíkóans okkar, Einars Hólmgeirssonar sem er upptekinn við mikilvæg mál eins og eitt stykki að ala upp frumburðinn.

Comments Ein athugasemd »

Setning dagsins er klárlega Ingimundar. Í samtali við blaðamenn vísi.is segir okkar maður „ Maður er stanslaust um hugsa um leikinn. Þegar maður er að fá sér appelsínu er maður að hugsa um hvernig maður ætlar að stoppa Bielecki og svo framvegis “

Ég hefði ekki viljað vera þessi appelsína. Hún er í dag týnd og tröllum gefin grátandi með Prins Póló í kjaftinum.

Diddi

Diddi

Comments Engar athugasemdir »

Okkar maður var hrikalegur í morgun á móti Pólverjum, Nokkuð ljóst að leikirnir á Bakkavelli í gamla daga eru að skila sér. Hann er nefnilega engin rosa gæi þessi Prins Póló.

Eitt er víst að Ingimundur okkar býr vel að því að hafa unnið Landsbankabikarinn með 6-A í Breiðholtsskóla árið 1992. Með þann sigur í farteskinu veit okkar maður hvernig er að spila á stórmóti og hann og Stulli Ásgeirs geta miðlað af þeirri reynslu sinni til félaga okkar sem hafa ekki spilað í Breiðholtsskóla treyjum. Ciudad Real og Lemgo treyjur eru því miður ekki eins stórar í augum Spánverja eins og eitthvað sem stendur Breiðholt á.

Okkur hlakkar mikið til föstudagsins, þar mun okkar maður ásamt landsliðinu öllu taka á Spáni og snúa þá niður í síestuna sína með soginn þumal.

Ef Spánverjarnir haga sér og gráta ekki of mikið yfir tökum Didda og Sverre á þeim mun DiddaCrew senda þeim íslenskann saltfisk. Hann er muy bien eins og sagt er á suðlægum slóðum.

Comments 2 Athugasemdir »

Lengi lifir í gömlum glæðum segir máltækið og hefur það aldrei verið réttara en akkúrat núna.

Fyrir 9 árum varð til lítill hópur sem stækkaði og stækkaði. Eini tilgangur hópsins var að styrkja og hvetja okkar mann og liðið í heild sinni. Farið var á leiki víða um landið við misjafna gleði heimamanna og daufri stemmningu breytt í karinval veislu.

DIddi er okkar maður og verður okkar maður. Við erum ÍR-ingar í hjartanu sem slær í takt við umferðarljósin í Mjódd.

Þar sem að Diddi hefur farið mikinn á Ólympíuleikunum ásamt Hreiðari, Stulla og Bjarna er komin tími á að kveikja aftur í stórveldinu sem Didda Crew er. Við stöndum saman, í gegnum súrt og sætt með okkar mönnum.

Áfram Diddi, Áfram ÍR og Áfram Ísland.

Comments Ein athugasemd »